Fréttir
20.08.2009
Inflúensulík einkenni og staðfest inflúensa A úr Sögu sjúkraskrá
Skráning á inflúensulíkum einkennum og staðfestri inflúensu A fer fram í Sögu sjúkraskrá á öllum heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum landsins. Í vor og sumar hefur verið unnið að rafrænum flutningi gagna á inflúensugreiningum sem eru skráðar í Sögu sjúkraskrá í samvinnu við fyrirtækið EMR heilbrigðislausnir sem sér um Sögu sjúkraskrá. Þessi skráning er nú virk og upplýsingar um inflúensutilfelli berast því rafrænt til sóttvarnalæknis frá öllum heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum á landinu einu sinni á sólarhring.
Þessi skráning gefur möguleika á að fylgjast með aldri og kyni þeirra sem veikjast og fylgjast tímanlega með útbreiðslu inflúensunnar um landið.
Upplýsingar úr gögnum úr Sögu sjúkraskrá verða uppfærðar vikulega á www.influensa.is undir Tölur um inflúensu í vetur eða þar til inflúensufaraldurinn er genginn yfir.
Mynd 1 sýnir inflúensulík einkenni og staðfesta inflúensu frá því í apríl 2009 en á vormánuðunum var árleg inflúensa enn að greinast. Við úrvinnslu gagna um inflúensu A(H1N1)v verður stuðst við gögn sem byggja á greiningum frá 29. júní 2009 (vika 27), en gera má ráð fyrir að inflúensa A(H1N1)v veiran sé algeng orsök inflúensulíkra einkenna frá þeim tíma.
Frá 29. júní hafa samtals borist 577 tilkynningar um einstaklinga sem leita til heilbrigðisþjónustunnar með staðfesta inflúensu A eða inflúensulík einkenni, þar af eru 262 karlar og 315 konur. Hröð aukning tilfella hefur átt sér stað á síðustu þremur vikum og gera má ráð fyrir að fjöldi tilfella fari vaxandi á næstu vikum.
Mynd 1
Mynd 2
Sóttvarnalæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.