Fréttir
17.09.2009
Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa í Sögu sjúkraskrá
Frá 29. júní – 13. september 2009 voru skráð samtals 1264 tilfelli með inflúensulík einkenni eða staðfesta inflúensu í Sögu sjúkraskrá, þar af voru 570 karlar og 694 konur. Faraldurinn færðist í aukana um miðjan ágústmánuð (í viku 33) og hefur vikulegur fjöldi tilfella á landsvísu verið svipaður síðastliðnar vikur, sjá mynd 1. Flest tilfelli hafa greinst á suðvesturhorni landsins en fæst í Vestmannaeyjum. Svo virðist sem faraldurinn hafi náð hámarki á landsbyggðinni um miðjan ágúst (í viku 33) en eftir það tilfellum hafi síðan fækkað nokkuð. Á höfuðborgarsvæðinu hefur vikulegur fjöldi tilfella verið svipaður síðastliðnar viku og virðist faraldurinn í hraðari útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni, sjá mynd 2. Flest tilfellin eru í aldurshópnum 15-34 ára, sjá mynd 3.
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Skráningin byggir á sjúkdómsgreiningum sem læknar á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum í landinu skrá í Sögu sjúkraskrá. Sjúkdómsgreiningin er langoftast byggð á klínísku mati læknis en er í stöku tilfellum einnig staðfest með sýnatöku. Þessi skráning endurspeglar að líkindum betur útbreiðslu inflúensunnar í samfélaginu en fjöldi staðfestra tilfella með sýnatöku.
Sóttvarnalæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008

2007

2006

2005

2004

2003

2002

2001

2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.