Fréttir

02.10.2009

Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi

Þann 27. september 2009 höfðu alls 214 manns greinst með inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi, sem staðfest var á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 115 karlar og 99 konur. Fjórir einstaklingar hafa verið lagðir inn á sjúkrahús af völdum inflúensu A(H1N1)v 2009 á aldrinum 1 - 43 ára en sá elsti þeirra var lagður á gjörgæsludeild. Þeir hafa allir náð sér eða eru á batavegi. Greinst hafa tilfelli með búsetu á öllum sóttvarnaumdæmum nema í Vestmannaeyjum, sjá töflu 1.

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa í rafrænni sjúkraskrá
Frá 29. júní – 27. september 2009 hafa borist tilkynningar um samtals 1644 tilfelli með inflúensulík einkenni (ILE) eða staðfesta inflúensu samkvæmt skráningum lækna í rafræna sjúkraskrá. Þar af voru 738 karlar og 906 konur. Faraldurinn hófst um miðjan júlí og náði hámarki í viku 36 í byrjun september á höfuðborgarsvæðinu en nokkru fyrr á landsbyggðinni eða um miðjan ágúst. Eftir það hefur nokkuð dregið úr faraldrinum, sjá mynd 1.

Útbreiðsla eftir á landsbyggðinni er nokkuð mismunandi. Í upphafi voru flest tilfelli á Vesturlandi, um tíma greindust margir á Vestfjörðum og á Suðausturlandi og upp á síðkastið hefur tilfellum farið fjölgandi á Suðurlandi.

Flest tilfellin eru í aldurshópnum 15–34 ára en þó má sjá töluvert af tilfellum hjá fólki á aldrinum 40–59 ára sem greinast með einkenni inflúensu. En eftir sextugt fækkar tilfellum verulega bæði meðal þeirra sem eru með staðfesta inflúensu skv. sýnatöku og þeirra sem koma til læknis með einkenni inflúensu, sjá mynd 3.
Skráningin í rafrænni sjúkraskrá byggir á sjúkdómsgreiningum sem læknar á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum í landinu skrá í rafræna sjúkraskrá. Sjúkdómsgreiningin er langoftast byggð á klínísku mati læknis en er í stöku tilfellum einnig staðfest með sýnatöku. Þessi skráning endurspeglar betur útbreiðslu inflúensunnar í samfélaginu en fjöldi staðfestra tilfella með sýnatöku. Til að meta útbreiðslu inflúensu A(H1N1)v 2009 eru gögn frá 29. júní (viku 27) skoðuð, en fyrir þann tíma má gera ráð fyrir áhrifum árlegs inflúensufaraldurs í gögnunum.

 

Tafla 1: Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v á Íslandi eftir búsetu 18. maí – 20. september 2009

Búseta

Fjöldi tilfella

Höfuðborgarsvæðið

137

Suðurnes

17

Vesturland

15

Vestfirðir

9

Norðurland

9

Austfirðir

13

Suðurland

4

Vestmannaeyjar

0

Búseta erlendis

10

 

Mynd 1

 

Mynd 2

 

Mynd 3

 

Sóttvarnalæknir

 

 

 

 

 

 

 



til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli