Fréttir
13.10.2009
Vísbendingar um að inflúensufaraldur A (H1N1)v 2009 sé að magnast
Undanfarnar tvær vikur hefur inflúensulíkum sjúkdómstilfellum fjölgað talsvert hérlendis, einkum á höfuðborgarsvæðinu. Hátt hlutfall sýna frá þessum sjúklingum greinist með inflúensu A(H1N1)v á veirufræðideild Landspítala sem bendir til þess að flest tilfellin séu af völdum inflúensunnar. Því má búast við útbreiddum faraldri á næstunni. Undanfarna daga hefur fjölgað þeim sjúklingum sem lagðir eru inn á sjúkrahús vegna inflúensu og nokkrir hafa verið lagðir á gjörgæsludeild. Það þarf samt ekki að þýða að faraldurinn sé að verða skæðari en áður heldur er sú skýring allt eins líkleg að eftir því sem fleiri smitast fjölgi þeim sem þurfa á sjúkrahúsvist að halda vegna undirliggjandi sjúkdóma sem geta gert inflúensuna alvarlegri en ella.
Sóttvarnalæknir hefur í tilkynningu til sóttvarnalækna um allt land bent á að ástæða sé til þess að nota meira en áður af veirulyfjum til meðferðar sjúklinga sem eru í hættu á að fá alvarlega sýkingu og draga þannig úr líkum á alvarlegum afleiðingum faraldursins. Því er hvatt er til þess að allir, sem eru haldnir lungnasjúkdómum, hjarta- og æðasjúkdómum, efnaskiptasjúkdómum, svo sem sykursýki, ofþyngd, skertu ónæmiskerfi og skertri lifrar- og nýrnastarfsemi, hafi samband við heilsugæsluna ef þeir veikjast með inflúensulík einkenni. Þunguðum konum, sem veikjast með inflúensulík einkenni, er einnig ráðlagt að hafa samband við heilsugæsluna.
Reynt verður að flýta fyrir því að bóluefni berist hingað til lands og er von á fyrstu sendingunni síðar í þessari viku. Áætlað er að fyrsta bóluefnið verði einkum notað til að bólusetja heilbrigðisstarfsmenn á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Í framhaldi af því verða einstaklingar með undirliggjandi sjúkdóma bólusettir. Tilkynnt verður nánar á næstu dögum um hvernig staðið verði að bólusetningunni.
Engin ástæða er til þess að breyta almennum sóttvarnarráðstöfunum hér á landi. Enn sem fyrr er hvatt til þess að þeir, sem veikjast með inflúensulík einkenni, haldi sig heima í allt að viku frá upphafi einkenna eða þar til þeir hafi verið einkennalausir (hitalausir) í tvo daga. Mikilvægt er að þeir, sem sýktir eru, haldi fyrir vit sér með bréfklút eða öðru til að hindra dreifingu úða frá hnerra eða hósta. Jafnframt er mikilvægt að þvo hendur reglulega og nota handspritt.
Bent er á að tölulegar upplýsingar um faraldurinn hér á landi eru birtar reglulega á http://influensa.is/.
Sóttvarnalæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.