Fréttir

14.10.2009

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa í rafrænni sjúkraskrá

Inflúensan færist enn í aukana.
Frá 29. júní – 11. október 2009 bárust samtals 2545 tilkynningar um inflúensulík einkenni (ILE) eða staðfesta inflúensu samkvæmt skráningum lækna í rafrænar sjúkraskrár. Þar af voru 1184 karlar og 1361 konur.

Í síðustu viku (viku 41) tvöfaldaðist vikulegur fjöldi tilfella miðað við vikuna á undan. Inflúensan breiðist hratt út þessa dagana og í síðustu viku var vikulegur fjöldi inflúensugreininga sá mesti til þessa, sjá mynd 1.

Inflúensa breiðist hraðast út á höfuðborgarsvæðinu eins og sést á mynd 2. Álag hefur aukist töluvert á heilbrigðisþjónustuna, bæði í heilsugæslunni og á Landspítalanum.
Þegar landsbyggðin er skoðuð í heild sést að inflúensan eykst þar líka, þó ekki eins hratt og á höfuðborgarsvæðinu, sjá mynd 2. Svo virðist sem lítið hafi verið um inflúensu á landsbyggðinni í síðustu viku en um helgina og í fyrri helming þessarar viku virtust veikindi aukast í samfélaginu með miklum fjarvistum í stöku skólum úti á landi en minna var um veikindi í öðrum skólum. Álag á heilbrigðisþjónustuna virðist ekki hafa aukist verulega á landsbyggðinni enn sem komið er en töluvert er um símhringingar vegna veikinda.
Flestir sem eru með einkenni inflúensu eru á aldrinum 15–34 ára. Töluvert er um inflúensu hjá fólki milli 40–59 ára en eftir sextugt fækkar tilfellum verulega, sjá mynd 3.
Skráning á einkennum inflúensu byggir á sjúkdómsgreiningum sem læknar á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum í landinu skrá í rafræna sjúkraskrá. Sjúkdómsgreiningin er langoftast byggð á klínísku mati læknis en er í stöku tilfellum einnig staðfest með sýnatöku. Til að meta útbreiðslu inflúensu A(H1N1)v 2009 eru gögn síðan 29. júní (viku 27) skoðuð, en fyrir þann tíma má gera ráð fyrir áhrifum árlegs inflúensufaraldurs í gögnunum.


Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi
Þann 11. október 2009 höfðu alls 323 einstaklingar greinst með inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi sem staðfest var á veirufræðideild Landspítala. Þar af voru 171 karlar og 152 konur. Tilfelli hafa nú greinst hjá fólki með búsetu á öllum sóttvarnaumdæmum.

Síðastliðnar tvær vikur má sjá mikla aukningu á tilfellum sem staðfest eru með sýnatöku þrátt fyrir tilmæli frá því um miðjan ágúst (viku 33) um að dregið skyldi úr sýnatöku, sjá mynd 4. Samtímis fjölgaði sýnum sem send eru í rannsókn  og endurspeglar það að líkindum aukinn fjölda inflúensutilfella í samfélaginu. Hlutfall sýna sem reyndust jákvæð fyrir inflúensu A(H1N1)v 2009 hækkaði einnig mikið síðustu tvær vikur (sjá mynd 5) og má því álykta að þeir sem fá einkenni inflúensu núna séu mjög líklega með inflúensu A(H1N1)v 2009.

Tafla 1

 Búseta  Fjöldi tilfella
 Höfuðborgarsvæðið  221
 Suðurnes  20
 Vesturland  17
 Vestfirðir  9
 Norðurland  14
 Austfirðir  17
 Suðurland  12
 Vestmannaeyjar  2
 Búseta erlendis  11

 

Innlagnir á Landspítala
Frá 23. september 2009 hafa alls 26 einstaklingar verið lagðir inn á Landspítala vegna staðfestrar eða líklegrar inflúensu A(H1N1)v 2009 og líklegt er að aukning á innlögnum endurspegli aukin veikindi í samfélaginu. Fólkið er á aldrinum 1 árs til 73ja ára og eru flest með undirliggjandi áhættuþætti. Þann 13. október lágu samtals 13 einstaklingar á sjúkrahúsinu, þar af þrír á gjörgæsludeild. Enginn hefur látist af völdum inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi.

Mynd 1

 

Mynd 2

 

Mynd 3

 

Mynd 4

 

Mynd 5

 

Sóttvarnalæknir

 

 

 

 

 


 


til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli