Fréttir
Hjúkrunarfræðingarnir Hjördís Jóhannesdóttir af bráðavakt Landspítala og Steinunn Halldórsdóttir frá Læknavaktinni svöruðu í síma í Samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð í gærkvöld. Hringt var linnulítið allan tímann af höfuðborgarsvæðinu og víðs vegar að af landinu. Meira að segja kemur fyrir að Íslendingar, búsettir í útlöndum, hringi í Læknavaktina og leiti ráða vegna inflúensufaraldurs eða af öðru tilefni.
23.10.2009
Símaráðgjöf í inflúensufaraldri
Fjölgað hefur verið hjúkrunarfræðingum sem svara í síma Læknavaktarinnar, númer 1770, á kvöldin og um helgar vegna aukins álags sem rekja má til inflúensufaraldursins.
Einn hjúkrunarfræðingur var að jafnaði áður á símavaktinni hverju sinni en nú eru fjórir hjúkrunarfræðingar þar samtímis að svara símum á kvöldin og um helgar, þar af tveir í Samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð 14, sem virkjuð var til að takast á við verkefnið. Hjúkrunarfræðingar frá Læknavaktinni og Landspítala sitja fyrir svörum og enn verður fjölgað í hópi þeirra ef þörf krefur.
Hringingar á Læknavaktina eru núna að jafnaði tvöfalt til þrefalt fleiri en áður og má rekja aukninguna til inflúensunnar. Þannig hringdu að jafnaði 80-90 á kvöldi á virkum dögum áður en inflúensufaraldurinn hófst en á bilinu 150-270 á sólarhring nú. Þá hringdu áður um og yfir 200 á sólarhring um helgar en hátt í 400 á sólarhring nú.
Ef upp koma veikindi sem benda til inflúensu er sjúklingum og aðstandendum þeirra bent á að hringja á dagvinnutíma, frá kl. 8:00–16:00, í heilsugæslustöðina á heimaslóðum sínum. Eftir dagvinnutíma, frá kl.16:00 til 08:00 virka daga, og allan sólarhringinn um helgar, er ýmis hægt að hringja í vaktþjónustu viðkomandi landshluta eða í Læknavaktina í síma 1770. Læknavaktin er með vaktþjónustu á höfuðborgarsvæðinu en sinnir einnig símaráðgjöf fyrir landsbyggðina.
- Ef upp koma bráð, alvarleg veikindi skal hringja í 112.
Þá má benda á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717. Þar eru veittar almennar upplýsingar um inflúensuna. Sóttvarnalæknir hefur annast fræðslu fyrir starfsmenn og sjálfboðaliða Hjálparsímans.
Hjálparsíminn svarar ekki fyrirspurnum er varða veikindi þeirra sem hringja eða aðstandenda þeirra. Öllum slíkum erindum verður vísað til heilsugæslu viðkomandi svæðis eða til Læknavaktarinnar.
Sóttvarnalæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.