Fréttir

29.10.2009

Einkenni inflúensu og staðfest inflúensa

Í síðustu viku (viku 43) greindust samtals 1781 einstaklingar með inflúensulík einkenni samkvæmt skráningu heilbrigðisþjónustunnar, sem er nokkuð svipað og vikuna þar á undan, sjá mynd 1. Frá 29. júní – 25. október hafa alls 6105 einstaklingar greinst með inflúensulík einkenni. Enn er nokkur munur á höfuðborginni og landsbyggðinni. Á höfuðborgarsvæðinu var engin aukning á útbreiðslu faraldursins á meðan hún jókst úti á landi, sjá mynd 2.

Breyting hefur orðið á aldursdreifingu tilfella, í júlí og ágúst voru flestir á aldrinum 15 – 30 ára. Á síðustu vikum varð hlutfallsleg aukning í aldurshópnum 1-9 ára þannig að inflúensulík einkenni voru langalgengust hjá þeim. Samtímis varð hlutfallsleg fækkun á tilfellum hjá einstaklingum á aldrinum 15 – 30 ára. Eftir sextugt fækkar tilfellum verulega.


Staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi
Þann 18. október 2009 höfðu alls 591 einstaklingur greinst með inflúensu A(H1N1)v 2009 á Íslandi sem staðfest var á veirufræðideild Landspítala. Þar af eru 297 karlar og 294 konur. Í síðustu viku (viku 43) var sýkingin staðfest hjá 105 einstaklingum, sem er fækkun miðað við vikuna þar á undan (vika 42), en þá var sýkingin staðfest hjá 165 einstaklingum. Tilfelli hafa greinst hjá fólki með búsetu í öllum sóttvarnaumdæmum.


Innlagnir á sjúkrahús
Frá 23. september 2009 hafa yfir100 einstaklingar verið lagðir inn á sjúkrahús með grun um inflúensu eða staðfesta inflúensu A(H1N1)v 2009. Langflestir hafa verið lagðir inn á Landspítala eða tæplega 90 manns, af þeim eru um 75% með undirliggjandi áhættuþætti. Frá því í lok september hafa alls 14 einstaklingar legið á gjörgæsludeild með staðfesta inflúensu A(H1N1)v 2009 eða grun um inflúensu.

Þann 28. október lágu 10 einstaklingar á gjörgæslu vegna inflúensu, þar af voru níu á Landspítalanum og einn á sjúkrahúsinu á Akureyri. Á Landspítala lágu samtals 39 sjúklingar með inflúensu þennan dag, en það er mesti fjöldi fram til þessa. Meðalaldur þeirra sem hafa legið á gjörgæsludeildum er 50 ára en aldursbilið er frá 2 ára til 79 ára.

Mynd 1

 

Mynd 2

 

Mynd 3

 

Sóttvarnalæknir

 


 


til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli