Fréttir
20.11.2009
Stór sending af bóluefni væntanleg um helgina - Þriðjungur þjóðarinnar ónæmur gagnvart inflúensunni A(H1N1)
20.000 skammtar af bóluefni gegn inflúensunni A(H1N1) eru væntanlegir til landsins um helgina og þeim verður dreift strax til heilsugæslustöðva. Bólusetning almennings ætti því að geta hafist víðast hvar strax eftir helgi, eins og ráð var fyrir gert en nokkur óvissa ríkti um hvort hægt yrði að standa við tímaáætlanir vegna tafa á afhendingu bóluefnis frá framleiðanda ytra.
Starfsmenn heilsugæslustöðva hafa frá því á mánudag tekið við pöntunum frá almenningi í bólusetningu en í ljósi tafa á afgreiðslu bóluefnis má ætla að endurskipuleggja þurfi biðlista á sumum heilsugæslustöðvum, að minnsta kosti.
Gert er ráð fyrir að 18.000 skammtar af bóluefni til viðbótar berist hingað í lok næstu viku en í ljósi reynslunnar er rétt að hafa fyrirvara á að sú áætlun standist. Spurn eftir bóluefni um allan heim er mun meiri en sem svarar til afkasta við framleiðslu þess.
Yfir 50.000 manns hafa verið bólusettir gegn inflúensunni hér á landi, einkum sjúklingar í skilgreindum forgangshópum, þungaðar konur og fólk í öryggis- og lykilstörfum af ýmsu tagi. Hluti þess hóps sem gegnir skilgreindum lykilstörfum, bíður bólusetningar og verður bólusettur í næstu viku.
Sóttvarnalæknir áætlar að um 60.000 manns hafi sýkst af veikinni. Þar með eru samtals yfir 110.000 manns orðnir ónæmir fyrir inflúensunni eða þriðjungur þjóðarinnar.
Inflúensufaraldurinn rénar nú hratt hérlendis, sem ekki síst skýrist af því hve margir hafa verið bólusettir.
Bólusetningin gengur afar vel og starfsmenn heilsugæslustöðva leggja hart að sér við umfangsmikið verkefni. Sóttvarnalæknir telur afar mikilvægt að landsmenn láti bólusetja sig við inflúensunni, þrátt fyrir að faraldurinn sé í rénun, til að draga úr líkum á nýjum faraldri á landinu síðar í vetur.
Sóttvarnalæknir
til baka
Fréttasafn
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september.
2009
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2008
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2007
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2006
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2005
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2004
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2003
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2002
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2001
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2000
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.